loading...
loading...
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

Það kostar ekkert að skrá sig og með því fá háskólanemar aðstoð við að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og ókeypis tryggingar. Viska - stúdent er fyrir háskólanema á aldrinum 18 til 35 ára.

Hjá Visku fá háskólanemar fría snjalltryggingu fyrir síma, tölvur, hjól, snjallúr og rafhlaupahjól.

Hjá Visku fá háskólanemar fría launaráðgjöf. Hvort sem er undirbúningur fyrir launaviðtalið eða yfirför yfir launaseðilinn þá stendur Viska við bakið á háskólanemum.

Hjá Visku fá háskólanemar fría lífeyrisráðgjöf sem getur skilað þeim milljónum við starfslok.

Viska niðurgreiðir námsbækur hjá Bóksölu stúdenta um 25%. Afslátturinn er í boði hjá Bóksölu stúdenta frá 1. ágúst til 30. september á hverju ári og fæst gegn framvísun félagaskírteinis Visku – stúdent.

Við fyrstu skref á vinnumarkaði geta komið upp margvíslegar aðstæður þar sem mikilvægt er að þekkja sín réttindi vel. Sérfræðingar Visku geta svarað spurningum um réttindamál háskólamenntaðra á vinnumarkaði.