Saga kjaradeildar talmeinafræðinga
Viska hefur lengi verið stéttarfélag talmeinafræðinga og var fyrsti faghópur félagsins stofnaður af þeim.
Árið 2025 var tekin sú ákvörðun á aðalfundi Félags talmeinafræðinga á Íslandi að óska þess að stofnuð yrði sérstök kjaradeild fyrir talmeinafræðinga til að fylgjast með og gæta hagsmuna félagsfólks FTÍ sem greiða stéttarfélagsgjöld til Visku. Var stofnað til deildarinnar á stjórnarfundi Visku hið sama ár og í fyrstu stjórn skipaðar Linda Björk Markúsardóttir formaður, Kristlaug Stella Ingvarsdóttir, Rannveig Rós Ólafsdóttir og Rósalind Signýjar Kristjánsdóttir.
Á aðalfundi Visku 2026 verður formlega lögð fram tillaga um stofnun kjaradeildar talmeinafræðinga, og ef sú tillaga er samþykkt á fundinum fer fram rafræn kosning um stjórn deildarinnar meðal þess félagsfólks sem skráð er í deildina.