
Verð lækkað um allt að 30% – sjö fyrirtæki lækkað eða fryst verð
Frá því að Viska vakti athygli á sögulegri dýrtíð á Íslandi, og því svigrúmi sem myndast hefur til verðlækkana, hafa sjö fyrirtæki boðað verðlækkun eða verðfrystingu. Tvö til viðbótar hafa boðað frestun eða takmörkun verðhækkana.
Viska fagnar þessum góðu fordæmum og minnir á að lægri verðbólga og lægri vextir eru sameiginlegir hagsmunir heimila og fyrirtækja. Félagið hvetur fleiri fyrirtæki til dáða og skorar á neytendur að beina viðskiptum til þeirra. Í þessu samhengi bendir Viska á að fyrirtæki auka ekki endilega hagnað með því að hækka verð í sífellu. Sölumagn, traust viðskiptavina og sterk langtímasambönd skipta einnig máli.
