Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Þekking sem vinnur með þér

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Heilsan í vinnunni

          Starfsfólk á rétt á heilbrigðum og öruggum vinnuaðstæðum.

          Öflugt vinnuverndarstarf sem skilar árangri krefst þekkingar og ábyrgðar af hálfu vinnuveitanda, samvinnu við starfsfólk, áhættumats og forvarna.

          Óhóflegur vinnutími og álag vegna ástands mönnunar, áreitni og slæm vinnustaðamenning veldur streitu og vanlíðan meðal starfsfólks. Ef ekki er brugðist tímanlega við slíkri þróun er hætta á auknum fjarvistum vegna veikinda og kulnunar í starfi.

          Árangursríkt vinnuverndarstarf byggir á góðu jafnvægi atvinnuþátttöku og einkalífs. Alvarleg áföll sem og ábyrgð á umönnun nákominna vegna veikinda eða fötlunar samhliða fullu starfi geta verið mjög streituvaldandi. Slíkar aðstæður kalla á viðbrögð í samstarfi vinnuveitanda og starfsfólks. Ýmsar ráðstafanir koma til greina, þ.m.t. endurskoðun verkefna og ábyrgðar og sveigjanleiki í vinnutilhögun. Leyfi frá störfum vegna umönnunar nákominna og sorgarleyfi taka einnig mið af þessu.

          Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 30. maí 2026.