Veikindaréttur
Veikindi og slys gera sjaldnast boð á undan sér. Þegar heilsu hrakar skiptir máli að vita að lög og kjarasamningar tryggja félagsfólki mikilvægt fjárhagslegt og félagslegt öryggi. Réttur til launa í veikindum er einn af hornsteinum réttinda á vinnumarkaði. Umfang hans, ávinnsla og framkvæmd ráðast þó meðal annars af því hvar starfað er, hvaða kjarasamningur gildir og hversu langur starfsaldur viðkomandi er.
Réttindi eftir vinnumarkaði
Réttindi félagsfólks BHM geta verið mismunandi eftir því hvort starfað er hjá ríki, sveitarfélagi eða á almennum vinnumarkaði.
Hjá hinu opinbera
Hjá ríki- og sveitarfélögum er veikindaréttur almennt rúmur og ávinnst hratt. Við mat á réttinum getur starfsaldur hjá opinberum aðilum skipt máli og í mörgum tilvikum talist samanlagður samkvæmt nánari reglum kjarasamninga.
Á almennum vinnumarkaði
Á almennum vinnumarkaði gilda lágmarksreglur laga, en kjarasamningar BHM tryggja að jafnaði ríkari rétt. Veikindaréttur eykst þá eftir nánari reglum kjarasamnings, meðal annars með hliðsjón af starfsaldri hjá viðkomandi atvinnurekanda.
Tilkynningaskylda og læknisvottorð
Þegar veikindi koma upp ber starfsfólki að tilkynna fjarvist með réttum hætti og eftir þeim reglum sem gilda á vinnustaðnum. Mikilvægt er að þekkja reglur um tilkynningaskyldu, læknisvottorð og önnur gögn sem kunna að vera nauðsynleg til að tryggja réttindi í veikindum.
Ef þú ert í vafa um rétt þinn eða lendir í ágreiningi við atvinnurekanda um veikindarétt skaltu hafa samband við þitt aðildarfélag innan BHM. Félagið þitt veitir ráðgjöf og aðstoð við að gæta réttinda þinna.
Stuðningur við fjarveru, bata og endurkomu
Veikindi barna og nánustu aðstandenda
Foreldrar geta átt rétt til fjarveru frá vinnu vegna veikinda barna samkvæmt ákvæðum kjarasamninga. Umfang réttarins, aldursmörk barns og skilyrði fyrir launagreiðslum ráðast af viðkomandi kjarasamningi.
Sérstök lögbundin réttindi geta jafnframt komið til álita þegar barn glímir við alvarlegan og langvinnan sjúkdóm eða alvarlega fötlun, meðal annars samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
Vegna veikinda annarra náinna aðstandenda kann réttur til fjarveru að leiða af kjarasamningi, ráðningarsamningi eða reglum vinnustaðar. Ekki er í gildandi íslenskum lögum almennur réttur launafólks til fjarveru vegna veikinda náins aðstandanda.
Starfsendurhæfing og sjúkrasjóðir
Ef veikindi vara lengi og réttur til launa í veikindum hjá atvinnurekanda er fullnýttur geta sjúkrasjóðir aðildarfélaga BHM veitt mikilvægan stuðning. Starfsendurhæfingarsjóðir, þar á meðal VIRK, geta jafnframt stutt fólk við að endurheimta starfsgetu og snúa aftur til þátttöku á vinnumarkaði.
Endurkoma til starfa og hlutastarf
Endurkoma til starfa eftir veikindi getur kallað á tímabundna aðlögun. Skipuleggja má endurkomu í samstarfi við atvinnurekanda, til dæmis með tímabundnu hlutastarfi eða öðrum ráðstöfunum sem stuðla að öruggri og farsælli endurkomu á vinnustað.
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 2. október 2026.